Góðann daginn kæru vinir!
Það eru margar fregnir af mér skal ég
segja, tölvan hefur verið biluð í dáldinn tíma en pabbi snillingur
náði að redda því alveg. Páskarnir eru á morgun og þá á ég 2
páskaegg sem verða étinn upp til agna!!
Ég var að horfa á ‘’Mörgæsa-myndina’’
eða ‘’Ferðalag keisaramörgæsanna’’ réttara sagt, mamma tók hana upp
í gær því við gátum ekki horft á hana því við vorum hjá Gústu ömmu
og Sigga afa.
Við fórum líka í stórann bíltúr í gær,
við fórum ‘’Nesjavallarveginn’’, það var ágætt, við fengum ís og
svala en það hoppaði allt til á leiðinni svo mér varð óglatt. Svo
stoppuðum við hjá eitthverjum sumarbústað sem pabbi hafði verið í
þegar hann var lítill. Pabbi bankaði upp á og eitthver kom til
dyra, þessi bústaður er til sölu núna, pabbi ætlar að láta bróður
sinn vita og athuga hvort hann hefur áhuga á að kaupa
hann.
Jæja, rosalega hlakka ég til páskana, en
núna hef ég bara ekkert meira til að blaðra um. Sjáumst
seinna!
Hera 
P.S. Ég hef því miður ekki skrifa mikið nýlega, reyni að bæta mig
